Handboltamaðurinn Ólafur Stefánsson endurskrifaði í gær sögu kjörs Samtaka íþróttamanna á Íþróttamanni ársins þegar hann var kosinn Íþróttamaður ársins með fullu húsi annað árið í röð. Ólafur fékk 380 stig af 380 mögulegum og 193 stigum meira en knattspyrnumaðurinn Eiður Smári Guðjohnsen. Í fyrra fékk Ólafur 480 af 480 mögulegum stigum og hlaut þá einnig 193 stigum meira en næsti maður sem var þá Snorri Steinn Guðjónsson.

Knattspyrnufólkið Eiður Smári Guðjohnsen og Þóra Björg Helgadóttir komu í næstu sætum á eftir Ólafi. Þóra var ein af þremur konum meðal efstu fimm í kjörinu en á eftir henni komu körfuboltakonan Helena Sverrisdóttir og frjálsíþróttakonan Helga Margrét Þorsteinsdóttir.

Þetta er í fjórða sinn sem Ólafur hlýtur sæmdarheitið Íþróttamaður ársins en hann fékk einnig þessa viðurkenningu fyrir árin 2002, 2003 og svo aftur 2008. Það hefur aðeins einn maður verið kosinn oftar en Ólafur og það er frjálsíþróttamaðurinn Vilhjálmur Einarsson sem var kosinn fimm sinnum á sex fyrstu árum kjörsins. Ólafur er hins vegar sá fyrsti til að vinna þessi verðlaun fjórum sinnum á sama áratugnum en Vilhjálmur vann þrisvar á sjötta áratugnum og tvisvar í upphafi þess sjöunda.

Hápunktur ársins hjá Ólafi Stefánssyni var án nokkurs vafa seinni úrslitaleikur Meistaradeildarinnar í Quijote Arena í Ciudad Real 31. maí. Ólafur skoraði 8 mörk í leiknum og sá til þess öðrum fremur með frábærri frammistöðu að Ciudad náði að vinna upp fimm marka forskot þýska liðsins Kiel frá því í fyrri úrslitaleiknum í Þýskalandi. Ólafur var borinn á höfuðstól í lok hans sem hetja spænska liðsins.

Ólafur kvaddi spænska liðið Ciudad Real á árinu með því að vinna sinn fimmtánda og sextánda titil með félaginu frá því að hann kom til Spánar sumarið 2002. Auk þess að vinna Meistaradeildina í þriðja sinn á fjórum árum þá varð liðið einnig spænskur meistari þriðja árið í röð.

Það er athyglisvert að Ólafur var einnig kosinn Íþróttamaður ársins tvö ár í röð þegar hann skipti síðast um félag en hann fór frá Magdeburg til Ciudad Real árið 2002 og var þá kosinn Íþróttamaður ársins 2002 og 2003. Ólafur fór til þýska liðsins Rhein Neckar Löwen fyrir núverandi tímabil og hefur verið í aðalhlutverki hjá liðinu í sterkustu deild í heimi.

Ólafur Stefánsson tók við titlinum Íþróttamaður ársins í gær í fjórða sinn og gladdi gesti og sjónvarpsáhorfendur með hógværð sinni og hugsjón. Hann viðurkenndi að hafa ekki verið mikið að pæla í því að hann gæti orðið Íþróttamaður ársins annað árið í röð. “Ég hélt að mér yrði kannski refsað fyrir að hafa ekkert gert á árinu fyrir Ísland þannig að ég var ekkert að hugsa um þetta,” sagði Ólafur Stefánsson.

“Þetta var gott ár en kannski má segja að þetta hafi verið hálft gott ár þó svo að það sé búið að vera gaman hjá Löven líka,” sagði Ólafur Stefánsson af hógværð og sinni vel þekktu gagnrýnu hugsun. Hann segir að sigurinn í Meistaradeildinni í maí standi upp úr. “Stundin í maí var afrakstur átta til níu mánaða, svita, tára og allt það. Hún var mjög gleðileg og góð en jafnframt óvænt og erfið. Ég sé ekki eftir því að hafa skipt um lið og mér finnst frábært að vera kominn til Þýskalands að reyna eitthvað nýtt og kynnast nýjum hlutum,” sagði Ólafur sem segir þýsku deildina reyna á sig. “Það er meira um morgunæfingar sem er ekki skemmtilegt fyrir 36 ára skrokk. Maður venst því bara sem sýnir það að þú getur aðlagast öllu. Manskepnan er aðlögunarhæfasta veran á jörðinni og ég reyni að nýta mér það,” segir heimspekingurinn.

“Auðvitað gæti maður hugsað; af hverju ekki að vinna fleiri titla á Spáni? en lífið var bara orðið þannig að það hefði bara verið endurtekning. Það hefði ekki verið þess virði að taka við þessum bikar á ári ef maður er að endurtaka sig,” sagði Ólafur og hann segir að Löven-liðið hafi ekki spilað nógu vel í vetur.

Ólafur snýr aftur í íslenska landsliðið á EM í Austurríki eftir meira en ársfrí. “Ég hef gert rétt með því að taka mér frí frá landsliðinu fyrst ég fékk þennan bikar og liðið komst á mótið. Það er því kannski enn þá meiri pressa á mér á mótinu fyrst ég gerði ekkert til þess að koma okkur þangað. Ég verð að reyna þá að hjálpa þar til,” segir Ólafur en breidd liðsins sýndi sig í keppninni. “Það komu margir góðir þættir út úr því að ég var ekki með í undankeppni EM og fyrst að við komumst þá er ég ekki með neitt samviskubit,” sagði Ólafur að lokum.

Óskar Ófeigur Jónsson skrifaði fyrir Fréttablaðið.

Hóf íþróttamanns ársins 2009

Smelltu á myndirnar til að sjá þær stærri.
 


 

Tagged with: