Þjálfari ársins
Á fundi Samtaka íþróttafréttamanna þann 14. desember 2012 var samþykkt breyting á reglugerð fyrir kjör íþróttamanns ársins til að bæta við kosningu á þjálfara ársins. Gjaldgengir eru þjálfarar sem eru íslenskir ríkisborgarar sem þjálfa keppnislið í íþróttum.
Kosið var með einföldu fyrirkomulagi fyrsta árið sem lið ársins var kosið. Hver meðlimur SÍ kaus einn þjálfara. Niðurstaða kosninganna var eftirfarandi:
2012
| 1 | Alfreð Gíslason | THW Kiel | Handbolti | 22 |
| 2 | Þórir Hergeirsson | Kvennalandslið Noregs | Handbolti | 1 |
Fyrir kjörið 2013 var fyrirkomulagi kjörsins breytt í samræmi við gildandi reglur um kjör íþróttamanns ársins. Hver kaus þrjá þjálfara. 5 stig voru gefin fyrir fyrsta sætið, 3 stig fyrir annað sætið og 1 stig fyrir þriðja sætið:
2013
| 1 | Alfreð Gíslason | THW Kiel | Handbolti | 54 |
| 2 | Sigurður Ragnar Eyjólfsson | Kvennalandslið Íslands | Knattspyrna | 34 |
| 3 | Gunnar Páll Jóakimsson | ÍR | Frjálsíþróttir | 33 |
2014
| 1 | Rúnar Páll Sigmundsson | Stjarnan | Knattspyrna | 69 |
| 2 | Alfreð Gíslason | THW Kiel | Handbolta | 60 |
| 3 | Heimir Hallgrímsson | Karlalandslið Íslands | Knattspyrna | 48 |
Íþróttamaður ársins
Hlekkir
Samtök íþróttafréttamanna
„Þann 14. febrúar 1956 komu þeir Atli Steinarsson, Frímann Helgason, Hallur Símonarson og Sigurður Sigurðsson saman til fundar í þeim tilgangi að stofna félag með sér er miði að því að vinna að betri aðstöðu við störf þeirra á íþróttavettvangi. Urðu allir sammála um að stofna þetta félag nú þegar.“
- úr ræðu Skapta Hallgrímssonar á 50 ára afmæli samtakanna.
Myndasafn
Vefstjórn

