Efstu tíu í kjöri Íþróttamanns ársins
Nöfn þeirra tíu íþróttamanna sem flest atkvæði hlutu í kjöri Samtaka íþróttafréttamanna á Íþróttamanni ársins 2014 hafa nú verið birt í fjölmiðlum en kjörinu verður lýst í Gullhömrum í Reykjavík þann 3. janúar 2015. Hófinu verður sjónvarpað í beinni útsendingu Rúv.
Þeir þrír aðilar sem flesta atkvæði fengu í kjöri þjálfara ársins hafa einnig verið tilkynnt, sem og þrjú efstu í kjörinu á liði ársins.
Íþróttamaður ársins er nú útnefndur í 59. sinn en lið og þjálfari ársins í þriðja sinn.
Íþróttamaður ársins
Efstu tíu sæti í stafrófsröð
Aron Pálmarsson (handbolti)
Eygló Ósk Gústafsdóttir (sund)
Guðjón Valur Sigurðsson (handbolti)
Gylfi Þór Sigurðsson (knattspyrna)
Hafdís Sigurðardóttir (frjálsar íþróttir)
Hrafnhildur Lúthersdóttir (sund)
Jón Arnór Stefánsson (körfubolti)
Jón Margeir Sverrisson (íþr. fatlaðra)
Sara Björk Gunnarsdóttir (knattspyrna)
Sif Pálsdóttir (fimleikar)
Lið ársins
Efstu þrjú sæti í stafrófsröð
Knattspyrnulandslið karla
Körfuknattleikslandslið karla
Meistaraflokkur karla Stjörnunnar í knattspyrnu
Þjálfari ársins
Efstu þrjú sæti í stafrófsröð
Alfreð Gíslason, þjálfari THW Kiel í Þýskalandi
Heimir Hallgrímsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu
Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari meistaraflokks karla hjá Stjörnunni
Íþróttamaður ársins
Hlekkir
Samtök íþróttafréttamanna
„Þann 14. febrúar 1956 komu þeir Atli Steinarsson, Frímann Helgason, Hallur Símonarson og Sigurður Sigurðsson saman til fundar í þeim tilgangi að stofna félag með sér er miði að því að vinna að betri aðstöðu við störf þeirra á íþróttavettvangi. Urðu allir sammála um að stofna þetta félag nú þegar.“
- úr ræðu Skapta Hallgrímssonar á 50 ára afmæli samtakanna.
Myndasafn
Vefstjórn



