Ólafur Stefánsson íþróttamaður ársins 2008 með fullu húsi stiga
„Þetta var ótrúlegt ár hjá mér, jafnt líkamlega sem andlega og hreinlega bara á öllum sviðum. Ég er afar þakklátur fyrir það,“ sagði Ólafur Stefánsson handknattleiksmaður í samtali við Morgunblaðið eftir að hann var kjörinn Íþróttamaður ársins 2008 af Samtökum íþróttafréttamanna. Þetta var í þriðja sinn sem Ólafur hreppir hnossið en hann varð einnig fyrir valinu 2002 og 2003. Að þessu sinni hlaut Ólafur fullt hús stiga í kjörinu, 480. Í öðru sæti varð Snorri Steinn Guðjónsson, handknattleiksmaður, og í þriðja sæti varð Margrét Lára Viðarsdóttir knattspyrnukona.
„Ég er að toppa núna sem íþróttamaður 35 ára gamall vegna þess að fram kom hópur fullbúinna einstaklinga sem eru með mér í liði auk þess sem þjálfarinn er frábær,“ sagði Ólafur og vísar þar til félaga sinna í íslenska landsliðinu í handknattleik og þjálfara þess, Guðmundar Þórðar Guðmundssonar, sem á árinu unnu til silfurverðlauna í handknattleikskeppni Ólympíuleikanna í Peking. Eftir því var tekið að á meðan Ólafur var hylltur af gestum, sem viðstaddir voru kjörið í gær, vísaði hann út í salinn og benti á samherja sína í íslenska landsliðinu og forystumenn handknattleikshreyfingarinnar sem þar sátu.
„Ég held að það sé alveg ljóst að ég stæði ekki í þessum sporum, að vera kjörinn íþróttamaður ársins, án þess sem við unnum saman á Ólympíuleikunum þótt ég hafi átt frábært ár með félagsliði mínu. Þar af leiðandi lít ég á mig sem fulltrúa þessa hóps sem vann silfrið í Peking,“ sagði Ólafur spurður út í samherja sína sem hann tileinkaði heiðurinn.
„Ég er svo glaður með að hafa haldið áfram með landsliðinu, ekki hætt og farið að fylgjast með úr fjarlægð. Um leið er ég þakklátur fyrir að hafa verið virkur þátttakandi í þessu ævintýri sem við skópum. Það er hreint æðislegt að vera hluti af þessum hóp. Þær minningar munu ylja mér um ókomin ár.
Þessu til viðbótar koma síðan „bónusar“ eins og sigur í meistaradeild Evrópu með Ciudad Real, Spánarmeistaratitill og fleira. Grunninn að því er maður að leggja með æfingum tíu til ellefu mánuði á ári hverju. Þannig að ég er mjög glaður,“ sagði Ólafur og bætti við að í upphafi ársins 2008 hafi ekki blásið byrlega eftir þrálát meiðsli í læri sem illa gekk að fá bót á. „En þegar það lagaðist small allt saman,“ sagði hann. Auk þess að vinna silfurverðlaun með landsliðinu á ÓL í Peking í sumar var Ólafur í sigurliði í meistaradeild Evrópu, markahæsti maður meistaradeildar, Spánarmeistari, bikarmeistari þar í landi og í sigurliði í keppninni um risabikar Evrópu á haustmánuðum.
Úr Morgunblaðinu
Íþróttamaður ársins
Hlekkir
Samtök íþróttafréttamanna
„Þann 14. febrúar 1956 komu þeir Atli Steinarsson, Frímann Helgason, Hallur Símonarson og Sigurður Sigurðsson saman til fundar í þeim tilgangi að stofna félag með sér er miði að því að vinna að betri aðstöðu við störf þeirra á íþróttavettvangi. Urðu allir sammála um að stofna þetta félag nú þegar.“
- úr ræðu Skapta Hallgrímssonar á 50 ára afmæli samtakanna.
Myndasafn
Vefstjórn



